Okei, núna verð ég að fá smá útrás.

Ég hata þennan flokk meira en ég hélt að ég gæti hatað nokkuð. Ég verð bara pirruð af því að heyra minnst á hann og sérstaklega þegar fólk er að lýsa yfir því hvað þau styðja þennan flokk.

Hyskið í þessum flokki heldur að þau séu eini “góði” flokkurinn sem er í boði og láta eins og þau eigi allt og alla. Og ekki er Framsóknarflokkurinn skárri. Sjálfstæðisflokkurinn gerir allt í gegnum Framsókn þar sem að hann er kominní ríkisstjórn. Halldór Ásgrímsson hlýðir Davíð Oddsyni eins og hann sé hundurinn hans.


Pabbi minn fór einhvern tímann fyrir nokkrum árum á kosningafund hjá xD og hlustaði á Dabba blaðra um það hvað stefnan þeirra væri óaðfinnanleg og að xD ætti bara að vera í ríkistjórn. Hann hefði alveg eins getað sagt að allir hinir flokkarnir sökkuðu og það æti bara að kjósa þá. Og pabbi (sem kýs Vinstri Græna nota bene) reis upp úr sætinu og sagði að allt sem hefði komið út ú honum væri kjaftæði og hraunaði yfir hann í svona kortér. Ég man nú reyndar ekki havð fleira fór fram þarna en þegar fundinum var lokið gekk Davíð upp að pabba og sagði honum að hann yrði að fá mann eins og pabba í flokkinn sinn. Pabbi sagði honum að hann kæmi ekki yfir í flokkinn hans og tók svo í hendina á honum og gekk burt. Og hvað haldiði? Davíð hafði látið smella mynd af þeim að takast í hendur og lét birta myndina í sjónvarpinu.

Þetta finnst mér vera hræsni að setja mynd af sér með einhverjum sem styður mann ekki í sjónvarpið.

Og bara svona upp á forvitni, hvaða flokk styðjið/kjósið þið????