Mig langar að starta upp smá þræði um Kanabis og lögleiðingu þess, persónulega er ég hlyntur lögleiðingu vegna þess að annað er frelsisskerðing, mér finnst að það ætti að leifa kanabis/hass og láta ríkið flytja þetta inn, í fyrsta lagi myndu glæpir í heiminum hrapa niður um 25-30%(giska ég á), peningum sem núna er spanderað í að finna og hafa þessa “glæpamenn”(þeir sem nota þetta) í fangelsum gæti verið notaðir til forvarna(og eyða hungri í heiminum kannski, verulega miklir peningar) verð á þessu myndir lækka um 85-90% vegna þess að mest af verðinu er “áhættuþóknun” fyrir að flytja þetta milli staða, líka myndi ég vilja setja reglu eins og er í sviss, ef þú ert ekki íslenskur ríkisborgari getur þú ekki keypt efnin, þetta myndi allavega sporna við því að menn séu að flytja hingað bara til að reykja, fyrst um sinn væri mikið um hassreykingar, eftir 3-5 ár dettur þetta niður og verður venjulegur partur af tilverunni, þú veist hvaða áhrif þetta hefur, þú ræður hvort þú gerir þetta(18-20 ára aldurstakmark fyrir að kaupa).

Ég veit svosem ekkert hvort það sé neitt vit í mér, en ég veit að kanabis neysla eykst frá ári til árs, og þetta hlýtur að vera spennandi fyrir krakka, alveg eins og að stelast til að reykja “bara því það er bannað”, það sem er verið að gera núna er augljóslega ekki að virka.

Mér þætti vænt um að fá smá feedback á þetta, smá rök um hvort það ætti að lögleiða kanabis eða ekki, og ef þið haldið að ég hafi rangt fyrir mér, reynið þá að sannfæra mig.