Bíddu nú við, er ritskoðun nauðsynleg? Mér finnst nauðsynlegt að það sé nákvæmlega enginn ritskoðun.
Ég á að vísu ekki Huga og ef ég vill taka þátt þá verð ég að fara eftir þeim reglum sem eigendurnir setja. En ég verð mjög ósáttur ef það á að byrja að dæma einhvað sem aðrir segja óæskilegt af því það samræmist ekki einhverjum skoðunum sem meirihlutinn hefur. Þessi vefur er sóttur af mörgum mismunandi einstaklingum og því finnst mér mikilvægt að hann sé algerlega óháður öðrum miðlum og fólk fá að segja nákvæmlega sem það vill, hvort sem það sé hægt að rökræða um efnið eða ekki. Ef þú ert ekki sammála einhverjum einstaklingum þá máttu bara sleppa því að lesa greinar eftir þá aðila og/eða sleppa því að svara þeim.
potent