Ég veit að þetta á ekki beinlínis heima á þessum korki, ég vil ekki heldur hljóma eins og algjör sauður með skítkast en ég er bara svo hneykslaður á þessum gaur..

Ég las greinina hans um George W. Bush “hr.Alheim” og var svo pirraður á fávísi hans. Hann vegsamar og lofar manninn og virðist ekki hafa kynnt sér neitt um Íraksstríðið, Afganistan eða aðrar “glæstar sigurfarir” hans. Það virðist vera að hann byggir greinina á ummælum pabba hans sem er harður sjálfstæðiðsmaður og virðist láta þar sér nægja til að skrifa grein um málefnið. Svo er hin grein hans um komandi glæsta sigra sjálfstæðisflokksins sem var skrifuð fyrir kosningar,þar t.d. kemur hann með hugmyndir fyrir ríkirstjórnina eins og til dæmis einkaher svo við gætum tekið þátt í mikilvægum hernaðaraðgerðum með bandamönnum okkar.. Það eina sem ég sá í þessum greinum sem meikaði eitthvað sens var
stafsetningin.

Veit ekki hvort þessi korkur tilgegndi einhverjum tilgangi, langaði bara að fá hressilega útrás ;)

Vona að hann lesi þetta og kannski láti sér detta í hug að kynna sér Írakstríðið betur eða prófi að fara á staðinn og sjá afleiðingar meistarans…