Mér þætti vænt um ef fólk gæti tekið sig saman og gefið mér yfirlit yfir þá misbeitingu valds sem ríkisstjórnin (Davíð og co) hefur náð að troða upp á samfélagið.

Hef aðeins verið að spá í það með félaga mínum að eyða 20-50 þús í ljósritun og dreifa í hús næstu kosningar.

(endilega látið mig vita ef þetta er lögbrot og sýnið mér þá afrit af lögum sem þetta mundi tengjast)


Skrifið aðeins upplýsingar sem eru svartar á hvítu, enga orðróma eða neitt slíkt.

Fólk gleymir of miklu hverjar kosningar.
Mér væri hálf sama hve ömurlegir valkostirnir eru en það er sannað að því lengur sem flokkar eru við völd því meiri verður spillingin og hrokinn.


Allavega, end of rant.
Flæðið eins og þið getið.
Ebeneser