Svona fór nú það, Davíð missti sig alveg(einsog stundum vill verða) í viðtali við RÚV í kvöld þar sem hann sýndi algert
virðingarleysi gagnvart forsetanum. Davíð sagði að Forsetinn væri vanhæfur vegna tengsla við Baug og opinberar hann þarna enn og aftur paranoju sína gagnvart Baugi og sannaði að lögunum sé eingöngu beint gegn þeim. Máli sínu til “rökstuðnings” minntist hann á að dóttir Ólafs ynni hjá Baugi og að forstjóri Norðurljósa hefði verið kosningastjóri Ólafs í seinustu kosningum. Hmm vegna þess að Sigurður G. var kosningastjóri hans og Baugur kaupir hlut í Norðurljósum nokkrum árum síðar til að bjarga því er Ólafur þar með orðinn vanhæfur vegna tengsla við Baug!

Þennan sama dag neitaði hann stöð2 um viðtal og lætur ekki sjá sig í þingsal til að rökstyðja mál sitt um fjölmiðlafrumvarpið eins og SJS benti réttilega á. Enda getur hann ekki rökrétt að neinu viti og fer yfirleitt bara að kasta skít í alla áttir eins og í þessu viðtali.

Eða einsog Stefán Jón Hafstein sagði réttilega í framhaldinu: Davíð er búinn að vera !
(Og það fer að líta út fyrir að styttra sé í 15. september en upphaflega var gert ráð fyrir :)
<br><br>*****************************************************************