Nú hef ég horft á seinustu tvo þættina af dópstríðinu (missti því miður af þætti númer eitt).

Ég hef miklar pælingar um þetta umræðuefni og hef ég heyrt mjög sterk rök með þessu, og jafnframt mjög sterk rök gegn þessu. Ég veit að það eru Íslendingar með síðu uppi, <a href="http://www.kannab.is">http://www.kannab.is</a>, og þar er verið að berjast gegn því að Kannabis efni verði lögleidd hér á landi.

Persónulega fannst mér Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstarrétarlögmaður, koma með bestu rökin í þessu máli og þau voru í raun og veru með. Ég nenni varla að fara út í þau en ég skal skrifa þau hérna ef einhverjir eru til í að fara að ræða um þetta.

Endilega grípið ykkur pól í hæðina, og rökræðið ykkar hugsun! Þetta verður spennandi og fróðlegt að sjá.<br><br>yngvi