Hvernig stendur á því að forsjálhyggjumenn spretta alltaf reglulega upp? Afhverju hefur fólk ekki lesið sögubækurnar sínar og séð að forsjálhyggja hefur valdið hvað mestum hamförum og fjöldamorðum mannkynssögunnar? Dæmi: Þýskaland Nazismans, 6 milljónir gyðinga útrýmt. Sovétríkin, pólitískar ofsóknir allt frá upphafi til enda með tilheyrandi fjöldamorðum og ógnum við heimsfrið. Kína: gera það sama og hin tvö báknin og þar með talið fjöldamorð á lýðræðissinnum á Torgi hins himneska friðar. Þetta eru bara nokkur dæmi um hinna mikla hrylling sem stafar af fólki sem hugsar á þann hátt að ríkið hafi vit fyrir þegnunum, með góðu eða illu.
Það hafa meira að segja staðið tilraunir með forsjálhyggjuna og lýðræði. Landi einu var skipt í tvennt, milli suðurs og norðurs og niðurstöðururnar er að finna á: www.andriki.is/vt/2000/06082000.htm
Everything that is really great and inspiring is created by the individual who can labour in freedom. - Albert Einstein