Hæ!

Íhalds-Sjálfstæðis-Kolkrabbablaðið DV er gjaldþrota. Það er í sjálfu sér ekki ný frétt fyrir þessu hafa sést sterkar vísbendingar eins og t.d. offors blaðsins á sínum tíma gegn Fréttablaðinu, tölur um dreifingu, afslættir og uppsögn ritstjóra fyrir stuttu sem sagðist, ef ég man rétt, hafa lokið ákv. verki. Það sem er hinsvegar ótrúlegt er stærð gjaldþrotsins og hvernig hin nakta íhalds-Sjálfstæðis-Kolkrabba mafía ætlar að vinna úr því.

Fyrir stuttu síðan var LÍ flokksvæddur. Einn fídus í flokksvæðingunni var þannig að ef visst háar afskriftir ættu sér stað þá fengist afsláttur af kaupverðinu. Nú vill svo “heppilega” til fyrir íhaldið að hægt er að slá tvær flugur í einu höggi þ.e. að láta afsláttinn borga gjaldþrot DV. Síðan á að stofna nýtt Kolkrabba blað.

Það verður að segjast alveg eins og er að aldrei hafa þeir sem samviskusamlega hafa borgað í hina leynilegu kosningasjóði Sjálfstæðisflokksins staðið jafn naktir og nú í sumar.

Kveðja,
FigRoll,
No bark - All bite