Ég komst hérna yfir kosningaloforð Fálkaflokksins.
Beint frá Æðstaráði, glóðheitt af borði Aðalritara.


Kosningaloforð Fálkaflokksins :


#1.Styðja stríð í óþökk meirihluta þjóðarinnar

#2.Beygja sig í duftið fyrir Deng Shao Ping.

#3.Níðast á Falong Gong meðlimum og meina þeim að koma til landsins.

#4.Skerða kjör öryrkja.

#5.Skerða kjör aldraðra.

#6.Skemma Heilbrigðiskerfið.

#7.Eyðileggja Velferðarkerfið skipulega.

#8.Láta þá lægstlaunuðu borga mesta skattinn.

#9.Skapa gjafakvótakerfi þar sem auðlindir þjóðarinnar eru gefnar á silfurfati til gæðinga sem fá að leigja hann síðan dýrum dómum.

#10.Einkavæða ríkisfyrirtæki til aðila með réttar pólitískar skoðanir.

#11.gangast í milljarða ábyrgð fyrir fyrirtæki vinar aðalritara.

Allsvakaleg afrek þetta.
Þeir eru nú algjörir fálkar í Fálkaflokknum.