Loksins er fólk byrjað að átta sig á hlutunum.
Brá mér heldur í brún núna á dögunum þegar sýnd var könnun um það hvaða stjórnmálamenn væru trúverðugir, að Ingibjörg Sólrún hafi verið trúverðugust er alveg með ólíkindum, þessi kona sem sagði hér fyrir borgarstjórnarkosningarnar að hún ætlaði sko alls ekki í þingframboð, en vitir menn sú braut nú eitt af loforðum sínum á fyrsta árinu, sem endurkjörinn borgarstjóri.
Fagna ég því að landsmenn séu byrjaðir að átta sig á þessu þvílíka rugli sem fer fram hjá Samfylkingunni, vona ég innilega að hún Ingibjörg Sólrún komist ekki á þing.