Að Rússar skuli leyfa Könunum að valsa inn í Írak eins og brúðkaupshjón í brúðarvalsi er nú bara skandall og ekkert annað. Að þeir skuli sniðganga nágranna sína svona sínir bara það að Rússland hugsar um ekkert annað en sinn eigin rass og olíu. Ef þjóðarleiðtogar þessa heims geta ekki staðið saman á móti fylkjum Palestínu sýnir bara það að kerfið sem við notumst við virkar ekki og alheimsstjórn ætti bara að skammast sín. Ekkert nema bleyður og hræsnarar.

Og að Ísrael er að hjálpa Könunum í þessu er líka hneyksli útaf fyrir sig og þeir ættu bara að hugsa um eigið skinn og hypja sig heim eða þá standa með Palestínu og útvega Saddam vopn til að verja Írak.


Og það að fólk sé að mótmæla að Ísland styðji Kanana í þessu stríði er nú bara enn einn skandallinn. Ef að Íslendingar vilja ekki fara í stríð við harðstjóra heimsins eftir aldir okurs og einokunar Danmörku sýnir það að Íslendingar læra ekki af reynslunni og eru uppi til hópa bara bleyður og landeyður og þegar tækifæri gerst á að breyta einhverju í heiminum og auka völd og virðingu Íslands sem stórveldis setja þeir bara rófuna milli lappana og skottast í burtu.

Það að Danir skuli kveikja í íslenska fánanum eftir aldir kúgunar einnotkun á fiskimiðum Íslands er bara hrottaskapur og dónalæti. Ég legg til að Davíð Oddson, háttvirtur forsætisráðherra og Össur Skarphéðinsson sendi Dönum skýr skilaboð til baka með því að kveikja í danska fánanum og hrekja burt danska sendiráðið.

xD fyrir menn með hreðjar.

Takk fyrir.
<br><br> “Farðu oft að húsi vinar; því illgresi er fljótt að vaxa í ónotaðann jarðveginn.”
“Farðu oft að húsi vinar; því illgresi er fljótt að vaxa í ónotaðann jarðveginn.”