Ég horfði á Silfur Egils í kvöld og verð að segja að eftir að hafa fylgst með Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni í þættinum finnst mér sorglegt að hann sé að kenna í HÍ vegna hversu litblindur hann er í stjórnmálum, og einnig verð ég að draga það í efa að hann sé heppilegur til að auka hróður sjálfstæðisflokksins. Einnig finnst mér að hann ætti að biðja starfsmenn fréttablaðsins og stöðvar2 afsökunar.

p.s. Ég hef aldrei kosið samfylkinguna, ég versla í Nettó og er ekki áskrifandi að stöð 2.