Ég vildi bara fræða ykkur um þennan merka mann sem ég þekki *mont*


F. á Djúpavogi 13. nóv. 1906, d. 11. ágúst 1993. For.: Jón Finnsson (f. 17. ágúst 1865, d. 25. apríl 1940) prestur í Hofsþingum í Álftafirði og k. h. Sigríður Hansína Hansdóttir, f. Beck (f. 2. maí 1872, d. 25. sept. 1949) húsmóðir. Föðurbróðir Svövu Jakobsdóttur alþm. og afabróðir Hrafns Jökulssonar vþm. K. (20. febr. 1932) Solveig Eyjólfsdóttir (f. 2. nóv. 1911, d. 29. júní 1995) húsmóðir. For.: Eyjólfur Jónsson og k. h. Þorbjörg Mensaldursdóttir. Börn: Sigríður (1933), Eyjólfur (1935), Jón (1937), Þorbergur (1940), Ólöf Steinunn (1947), Finnur (1952).
Samvinnuskólapróf 1927. Nám við Pitman College í Lundúnum sumarið 1929.
Stundaði verslunarstörf á Djúpavogi og ýmsa aðra vinnu ásamt heimanámi 1921—1923. Sjómaður 1924—1925. Starfsmaður í Stjórnarráði Íslands 1927— 1930 og jafnframt endurskoðandi fyrir Skattstofu Reykjavíkur. Stundakennari við Samvinnuskólann 1927—1930. Skattstjóri í Reykjavík og jafnframt formaður niðurjöfnunarnefndar 1930—1934. Skip. 28. júlí 1934 fjármálaráðherra, lausn 17. apríl 1939. Skip. sama dag viðskiptamálaráðherra, lausn 7. nóv. 1941, en gegndi störfum til 18. nóv. Skip. sama dag viðskiptamálaráðherra að nýju, lausn 16. maí 1942. Framkvæmdastjóri Prentsmiðjunnar Eddu 1943—1947. Skip. 4. febr. 1947 menntamálaráðherra, lausn 2. nóv. 1949, en gegndi störfum til 6. des. Skip. 14. mars 1950 fjármálaráðherra, lausn 11. sept. 1953. Skip. sama dag fjármálaráðherra áfram, leystur frá störfum 14. apríl til 8. sept. 1954 vegna veikinda, lausn 27. mars 1956, en gegndi störfum til 24. júlí 1956, skip. sama dag fjármálaráðherra enn á ný, lausn 4. des. 1958, en gegndi störfum til 23. des.
Skip. 1930 í nefnd til að koma nýrri skipan á ríkisbókhald, ríkisreikninga og fjárlög, 1931 í verðrannsóknarnefnd, 1933 í undirbúningsnefnd kosningalaga og 1938 í mþn. í gjaldeyrismálum. Kosinn 1940 í mþn. um gjaldeyrisverslun og innflutningshömlur. Formaður bankaráðs Búnaðarbankans 1941—1942. Skip. 1943 í mþn. í sjávarútvegsmálum. Átti sæti í skilnaðarnefnd 1944 og í íslensk-danskri samninganefnd vegna sambandsslitanna 1945—1946. Í stjórn Síldarverksmiðja ríkisins 1947—1973, en starfaði þar ekki þegar hann var ráðherra. Í landsbankanefnd 1950—1957 og í stjórn byggingarsjóðs kaupstaða og kauptúna, síðar byggingarsjóðs verkamanna 1950—1970. Í stjórn Framkvæmdabankans 1953—1966 og í stjórn Framkvæmdasjóðs 1966—1968. Kosinn 1959 í mþn. í öryrkjamálum. Fulltrúi á þingi Evrópuráðsins 1966—1971. Í Norðurlandaráði 1969—1971. Í Þingvallanefnd 1968—1975 og formaður hennar frá 1972. Skip. 1968 í endurskoðunarnefnd laga um friðun Þingvalla og um náttúruvernd. Skip. 1971 í nefnd til að gera tillögur um framtíðarskipan verslunarmenntunar og nefnd til að semja frumvarp um stofnun og rekstur félagsmálaskóla verkalýðs- og samvinnuhreyfingar, ennfremur í landnýtingar- og landgræðslunefnd og jafnframt formaður hennar og í nefnd til að endurskoða rekstur Ríkisprentsmiðjunnar Gutenbergs. Formaður Náttúruverndarráðs 1972—1978. Kosinn 1973 í neyðarráðstafananefnd vegna eldgossins á Heimaey, formaður hennar. Formaður Framsóknarflokksins 1962—1968. Formaður stjórnar Sambands íslenskra samvinnufélaga 1975—1978. Í stjórn Þjóðhátíðarsjóðs 1977—1988.

Alþm. S.-Múl. 1933—1946 og 1947—1959, alþm. Austurl. 1959—1974 (Framsfl.).
Vþm. S.-Múl. sept.—okt. 1946 og allt þingið 1946— 1947.
Fjármálaráðherra 1934—1939, viðskiptamálaráðherra 1939—1942, menntamálaráðherra 1947—1949, fjármálaráðherra 1950— 1958.
Forseti Sþ. 1971—1974.
Formaður þingflokks framsóknarmanna 1934 og 1943—1969.

Samdi bæklinga og fjölda greina um stjórnmál og náttúruverndar- og útivistarmál. Úrval þeirra birtist í Sókn og vörn (1977). — Vilhjálmur Hjálmarsson ritaði Ævisögu Eysteins Jónssonar í þrem bindum (1983—1985).


Kv. Azde