Davíð Oddson er rækilega búinn að gera í buxurnar þessa dagana, undanfarið hefur hann logið blákallt ofaní þjóðina án þess að blikka. Hann laug þegar hann sagðist ekki hafa vitað af Sullenberger fyrr en eftir húsrannsókn lögreglunar hjá Baugi, og þykir það víst að frásögn hans frá því í morgun af meintu mútuboði Jóns Ásgeirs forstjóra Baugs sé næst því að vera uppspuni.

Davíð ætti að segja af sér tímabundi þangað til búið er að rannsaka þetta mál. Hvergi nema á Íslandi kemst ráðherra upp með annað eins nema á Íslandi!

“Hreinn Loftsson stjórnarformaður Baugs Group hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann segir að frásögn Davíðs Oddssonar forsætisráðherra í viðtali í morgunútvarpi Ríkisútvarpsins af meintu mútuboði Jóns Ásgeirs Jóhannessonar sé röng. Segist hann ekki gera sér grein fyrir því hvers vegna forsætisráðherra spinni söguna nú með þeim hætti sem hann hafi gert.” – mbl.is

“Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, hefur í morgun farið yfir það með sínum lögmönnum hvort hann eigi að stefna Davíð Oddssyni forsætisráðherra fyrir ummæli hans í morgunþætti RÚV í morgun. Í samtali við Vísi.is sagði Jón Ásgeir að lögmenn Baugs telji fulla ástæðu til að kæra Davíð fyrir meiðyrði.” – visir.is

Davíð réðst ekki aðeins að aðstandendum Baugs í Morgunvaktinni á RÚV í morgun. Beindi hann einnig spjótum sínum að Stöð 2 og Fréttablaðinu. Það mátti lesa það úr orðum Davíðs að hann teldi Baugsfeðga standa á bakvið umtalaðar fréttir í Fréttablaðinu og sagði þær ekki vera fréttir eða fréttmannsku heldur aðgerðir og taldi það augljóst hverjir væru að “fóðra” þetta.

Með öðrum orðum er Davíð að reyna að selja almenningi að Jón Ólafsson, Baugur, Stöð 2, Fréttablaðið og Samfylkingin séu öll að vinna að því ljóst og leynt í sameiningu að koma sér frá völdum í næstu kosningum.
<br><br>
Kv.

<b>Skhyler</b>
<a href="http://www.sigurdss0n.com“><font color=”#666666">sigurdss0n.com</font></a