Davíð oddson er aumingi ljótur og leiður,
lymskan í rammskökkum glyrnunum býr.
Kjafturinn dragúldinn, gapandi gleyður
af gáfum er snauður og mannkostarýr.
Hangir sem slepja á háðungarsnaga,
rænuleg ásýnd hins volaða manns.
Verði um aldir og eilífa daga
óvirt og hábölvuð minningin hans.