mér finnst skammarleg fréttin sem kom í sjónvarpinu í gærkvöldi þar sem var fjallað um nýja byggingu sem er verið að byggja við alþingishúsið. þar kom fram að þessar framkvæmdir kosta um 800 miljónir og endanlega kostnaðar tala er ekki en komin.

mér er minnistæt lætin sem urðu út af skuldum landsspítalans, þær eru um 900 miljónir, ég get ekki annað en velt fyrir mér hvað sé að þessum mönnum sem eru á þingi. eina sem þeir hugsa um er að byggja höll í japan sem kostaði 1000 miljónir, bjóða til nato fundar sem kostaði 500 miljónir og eiða í bílastæði undir sjálfan sig sem kosta um 800 miljónir, ef ekki meira. og á meðan er eins og fólkið í landinu meigi drepast ef það verður veikt. þetta er til háborinar skammar!

ég veit fyrir mig að ég ætla sko alls ekki að gefa þessum mönnum sem eru við stjórnvöld núna mitt atkvæði í næstu kostningum, því mér er annt um mína heilsu og þessir menn eru alls ekki að hugsa um heilsu fólks. og mér finnst að stefna í heilbrigðismálum ætti að vera stórt kostninarmál og stór atriði í næstu kotstningum sem fara að koma.