“Fimmtánda fórnarlambið finnst í rústunum í Gasa



Palestínumenn fundu lík fjögurra ára drengs í húsarústum í Gasaborg í dag en drengurinn er fimmtánda fórnarlamb árásar Ísraelshers á íbúahverfi í Gasaborg í fyrrinótt.

Binyamin Ben-Eliezer, varnarmálaráðherra Ísraela, sagði í viðtali við ísraelska útvarpið í dag að upplýsingar ísraelsku leyniþjónustunnar hefðu bent til þess að Salah Shehadeh, einn af leiðtogum Hamas-samtakanna, hafi verið á fundi með öðrum leiðtoga samtakanna í húsinu, sem Ísraelsher varpaði sprengju á, og að engir óbreyttir borgarar væru í húsinu.

Síðan hefur komið í ljós að eiginkona Shehadehs og fjórtán ára dóttir þeirra voru einnig í húsinu og segir ónefndur heimildarmaður AP fréttastofunnar hugsanlegt að fjölskyldan hafi flutt inn í húsið fyrr en til stóð en hún flutti þangað þremur dögum fyrir árásina.

Þá segja heimildarmenn innan Ísraelshers að herinn hafi ekki séð það fyrir að sprengjan, sem vóg eittt tonn, myndi eyðileggja nærliggjandi hús og valda þannig frekari dauðsföllum. Ellefu óbreyttir borgarar létu lífið í þremur nálægum húsum, þeirra á meðal átta börn.

Palestínumenn segja 90 herskáa Palestínumenn og 45 óbreytta borgara hafa fallið í árásum Ísraela gegn ákveðnum einstaklingum á undanförnum tveimur árum.”
Tekið af www.mbl.is


Þetta er uppskera eins besta árangurs ísraelshers að mati ariels sharon, sem hrósaði sínum mönnum í hástert eftir að hafa sprengt eins tonna sprengju í íbúðarhverfi en af einskærri mannúð lét hann fylgja með í restina að hann harmaði dauða óbreyttra borgara…..

Eftir gagnrýni frá Bandaríkjunum,ESB,SÞ, Englandi o.fl hefur ánægjann aðeins minnkað hjá honum allaveganna í fjölmiðlum, nú reynir hann og talsmenn að sannfæra heimin um að þeir héldu að 1.000 kg sprengja myndi ekki eyðileggja fleir byggingar í nágrenninu. Trúi því hver sem vill.


Dauðalisti Sharons fer ört vaxandi, allt frá skipulögðu fjöldamorðunm í beirút þar sem ölum karlmönnum tólf ára og eldri voru leiddir út, bundnir og skotnir í samfellt þrjá daga, og þyrla lýsti niður í bæinn svo að þeir gætu líka drepið um nóttina,

Innrás ísraelshers inn á sjálfstjórnarsvæði palestínumanna þar sem íbúðir og önnur hús voru rifin niður, og engu skeytti hvort einhver var í þeim eða ekki, og þeir sem fóru út úr íbúðum sínum eftir tiltekin tíma voru skotnir, þar skeytti heldur engu um aldur og kyn.

Til dagsins í dag þar sem þessi morðóði forsætisráðherra lætur 1000 tonna sprengju í íbúðar-hverfi og þykist svo ekki hafa vitað að hún myndi valda meiri usla en í því eina húsi….


Já dauðalisti Sharons er orðinn langur og er eitt víst að nöfnin á honum munu fjölga, því sagan segir okkur að þar sem Sharon er við stjórn, þar er ófriður og manndráp…

En sem betur fer fyrir hann, þá er hann Gyðingur og því er hann “maður friðarins” hjá meistara Bush og því með nánast frjálsar hendur. En Slobodan Milosevic hann er ekki eins heppin og sharon að vera vinur Bush, og þess vegna geldur hann sinna morða með fangavist í haag, en Sharon geldur sinna með klappi á bakið og fjárstuðningi frá Bandaríkjunum….


Taka ber tillit til þess að ekki er hægt að leggja að jöfnu Ísraels ríki og einstakra hryðjuverkasamtaka.

Hvernig haldiði að því hefði verið tekið hefði arafat, ákveðið að sprengja eitt íbúðarhverfi í ísrael vegna þess að þar var maður sem hann vildi feigan????


Eða þá betra dæmi….
Svartur maður í Bandaríkjunum er grunaður um morð á hvítum Bandaríkjamanni og þeir vita hvar hann er staddur og varpa 1000 kg sprengju á Brooklyn, hvernig myndi það leggjast í ykkur????

Eða bíttar þetta kannski minna máli, af því að þeir eru múslimar?




kv;vigni