Góð og sæt kona.
53 ára gömul, reyklaus kona vill kynnast íslenskum manni með hjónaband í huga. Er gullsmiður. Öllum verður svarað. Skrifa á ensku og mynd sendist með. Vera Beljaeva Rigas Str. 2_10 Carnikava LV 2163 Lettland.



Svona hljóðar smá-auglýsinig í Dv í gær.
Kona frá Lettlandi, sem langar greinilega að flytja hingað til lands, sér ´þá einu leið að gifta sig íslenskum manni. S.s selja sig til þess að FÁ að búa með okkur á þessu skeri.
Það hefyr lengi verið frægt að mjög erfitt er að flytjast til íslands.







Hún er 53ára og þar með of gömul til að strippa, en Stripparar frá þessu sama landi hafa komist klekklaust til landsins vegna þess að þær eru \“Listamenn\”.
Þessi kona er lærður gullsmiður, og því ætti hún að geta séð fyrir sér hér á landi, EN þar sem ríkisstjórnin hefur þessi járn-tök á innflytjendamálum þarf hún að SELJA SIG! endurtek SELJA SIG! til þess að flytja hingað til lands.

Hvernig væri nú að gera fólki af öðrum þjóðernum, mannúðlegri séns á að flytjast hingað til lands.
Þetta er bara eitt dæmi þar sem svona auglýsingar eru tíðar, t.d í smá-auglísingum DV. Þykir mér það ógeðfellt að eina leiðin fyrir fólk sem vill hingað flytja séu að bera sig eða SELJA SIG.

Þessu fólki er gert svo erfitt fyrir hvað mest má vera.
hver man ekki eftir konuni sem kom í fréttirnar því hún þurfti að fljúga til filippseyja minnir mig, og sækja þar um leyfi í danska sendiráðinu til þess að fá að búa hér áfram.

Hvernig væri nú að gera fólki að flytja til landsins,án þess að farið sé með það eins og söluvöru??


kv;vigni