Þá er loksins komið að því að stjórnmál fái sinn eiginn banner og þar sem þið eruð stödd á lýðræðislegu áhugamáli þá ætlum við að hafa kosningar og keppni um nýjan banner.
Reglur keppnarinnar eru eftirfarandi:
Bannerinn þarf að vera 629x107 pixlar að stærð og á .pgn formati.
Keppnin stendur til 1. október.
Kosning hefst 1. október.
Ef að minnsta kosti 5 bannerar verða ekki skráðir til keppni þann 1. október þá mun kosningum vera frestað þar til bannerarnir hafa náð áðurnefndri tölu.
Hver og einn má senda allt að þremur bannerum í keppnina.
Til að skrá banner í keppni skal senda hann inn sem mynd á áhugamálið í áðurnefndri pixla stærð og á .pgn formati.

- Stjórnendu