Þeir hafa nú verið duglegir bankamiðlarnir að setja upp það leikrit að hér sé einhverslags fjölþjóðlegt þjóðerniseinelti í gangi gegn íslensku fjármálahetjunum okkar.

Er staðreyndin ekki bara einföld.

Útrásin var á láni og einkaflugvélarnar borgaðar af íslenskum almenningi í gegnum vaxtamismun.

Hverjir borga svo brúsann að lokum ? Ekki eru það þeir þeir sem svífast einskis til þess að ræna af okkur auðlindum okkar, landinu okkar, þjóðerninu og svo að lokum frelsinu, þeir sem eru í óða önn að gera okkur að þrælaþjóð.

Ég vill minna ykkur öll á hvernig Hitaveitu Suðurnesja, einu af gulleggjum okkar Íslendinga, var rænt af okkur, hvernig ákveðnar ,,hetjur" í skjóli útrásar rændu okkar íslensku sameign og hvernig þeim tókst að sannfæra sitjandi ríkisstjórn að undanskilja Hitaveituna í þeim orkulögum sem Alþingi er í þann veg að samþykkja.

Og nú heimta þessir sömu menn rán á sjálfu fullveldinu.