Það var fróðlegt að fylgjast með ferðum Íransforseta í New York í gær og í fyrradag. Þessi brjálæðingur, sem er einkum frægur fyrir viðurstyggilegar skoðanir sínar á þjóðarmorðum og helförinni, hélt þar áfram að formæla Ísrael og vestrænni menningu.

Þá kom í ljós að hann er blindur á skelfinguna og óréttlætið sem klerkastjórnin í Íran hefur leitt yfir þjóð sína. Auk þess ætla klerkarnir að halda ótrauðir áfram í viðleitni sinni til að koma sér upp kjarnorkuvopnum.

Í fyrradag hélt Ahmadinejad ræðu í Columbia háskóla í New York, við það tækifæri lét rektor skólans þessu fróðlegu ummæli falla, sjá:

http://youtube.com/watch?v=tACSopIZVdk

Hér má svo sjá stuðningsmenn kjarnorkufíklanna í Tehran mótmæla skopmyndum af Múhameð spámanni í Jótlandspóstinum, og hvetja til hryðjuverkaárása í Danmörku og víðar í Evrópu:

http://youtube.com/watch?v=B_kyNIevsIs