Hversu lengi skal ég bíða þess að veröld verði sönn?
Er frelsið enn svo óþroskað - barn með enga tönn?
Lýðveldi er stjórnað hart af hræsnurum og svikum
Þjóð er voodoodúkka - nálapúði - úttroðin af stikum…

Ógnarstjórnir ríkja enn í heimi sem er “frjáls”
En það er engin leið að sjá - hvern skal skera á háls
Sökin liggur ekki í flokkum - né spilltum einvaldssinnum
Hún liggur hér í mér og þér - undir fölskum skinnum…

Við lifum hér í heimi döprum - leynumst undir meiki
Ég veit þú lýgur sjálfur - hef spilað þessa leiki
Brögð í tafli og ekkert er satt - hver erum við í raun?
Með bros á feisi - útávið - og grátum svo á laun…

Verum sönn og opnumst upp - líkt og blóm á engi
Frelsið sem við þráum svo - hefur falið sig svo lengi
Með réttu hugarfari - ástúð - við getum skilið hvort annað
Og lifum svo í einni heild - þar sem ekkert gott er bannað…


-(anarkista)pardus-
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.