Málið er nú að verið er að banna helling. T.d. er búið að banna alkahólið í Maltinu. Maltið er ónýtt, einfalt. Það var gert fyrir “börnin”.
Nú er verið að hækka cigarettu verð upp úr öllu, á endanum banna þeir þær.
Bann við boxi. Bann við hinu og þessu (einhver endilega að koma með fleiri dæmi, þar sem kálið í hausnum á mér er ekki beint að virka.)
Málið er það að ríkið heldur ennþá, að bann við þessum hlutum muni stöðva þá. Aldeilis ekki. Hvað er það skemmtilegasta sem maður gerði þegar maður var krakki? Það var að gera eitthvað bannað. Þau börn t.d. sem eru svoleiðis, laðast oft að því sem er bannað, jafnvel upp undir fullorðinsár, þau gera það, og jafnvel allir, svona inní sér.
Sjáið boxið t.d., það er bannað, en það er jú stundað hérna!
Dóp er bannað, samt er það notað alveg hrikalega mikið hérna!

Bönn laða að sér neyslu eða iðkenndur. Þetta er staðreynd sem hefur verið vitað lengi. Sálfræðingar vita af henni, en ekki ríkið. Eða hvað?
Ríkið virðist ekki geta komið einni hugsun sem er ný, í blessað heilabúið á sér. Eins og þetta. Bönn laða að sér fólk. Gamalt sem ungt. Ef forvarnir væru meiri og betri, betur hugsaðar, eki að segja dóp er vont, dópið drepur þig, blablablabla heldur sýna fólki kaldan veruleikan með því að sýna því myndir af fólki sem er orðið svo ruglað í hausnum, fólk sem drepst af völdum ofneyslu, o.s.frv. þá yrði fólkið hræddara við þetta! Sérstaklega ef þetta yrði gert við yngri kynslóðina.

Bönnin hafa eiginlega aldrei leitt gott af sér. Það verður bara ólögleg sala og iðkun sem myndast inn í þjóðfélaginu.
T.d. munntóbakið, hvað eru margir sem nota það enn?
Snuffið góða fræga, ennþá slatti í umferð!

Þegar vínbannið stóra var hérna, upp úr 1940, þá hefur aldrei verið eins mikið brugg ílandinu og fólk lét ekkert eitthvað bann stoppa sig í að drekka. Þetta er stundað enn, vegna þess að lítil börn geta keypt hann af sölunum fyrir slink.

Ég segi bara, burt með öll þessi bönn. Hvernig væri að einbeita sér að forvörnunum í staðinn, og þá meina ég FORVÖRNUM, ekki þeim sem púslað er sama á nokkrum tímum, heldur alvöru thing, sem væri hægt að nota í mörg mörg ár!!! Ekki sviðsettar myndir, heldur alvöru thing, þetta er náttúrulega mest gegn eiturlyfjum en samt.

Jæja, ég læt ykkur um að fylla í eyðurnar sem vantar í, og bæta við sem ykkur finnst vanta, þakka bara fyrir mig.

ViceRoy