Ég hef horft á Alþingi í Sjónvarpinu og finnst mér að Vinstri
Grænir séu alltaf í ræðustólnum eins og þeir séu með helmingin af
öllum þingmönnum. Þeir eru alltaf að rífast út af hinu og þessu og
með þá Ögmund og Steina J sem eru alveg frábærir í stólnum að raka
niður Sjálfsstæðisflokkinn sem eina vörn hans reynist vera sú að
segja að þeir ætli að einkavæða meira og meira einkavæða börn koma
þeim í gott verð og selja síðan til útlanda kannski.
Eini góði ræðumaður hjá Sjálfsstæðisflokknum er hann Pétur Blöndal
hann stendur á skoðunum sínum og virðist ekki fara eftir því hvað
hinn almátugi Davíð segir eins og að segja að öryrkjar séu
drykkjusjúklingar og fleira sem hægt er að hlæja að.
Mér finnst það líka vera skondið þegar Forseti Alþingis lemur í
bjölluna og virðist það fara eftir flokkadráttum hver fær þyngsta
höggið og finnst mér að Forsetinn ætti að lemja þingmenn stöku
sinnum með hamrinum sínum.