Mér finnst persónulega öll þessi umræða um vændi og stripp vera á svo lágu plani hér á íslandi, það mætti halda að sumt fólk sem er í fararbroddi í baráttuni að eyðileggja strippbransann hafi fæðst í gær, ég vill benda á að nektardans er til staðar í öllum siðmenntuðum löndum í hinum vestræna heimi.

Það hafa komið ýmsir puntar frá hinum og þessum um þetta efni, til dæmis að þessar stúlkur sem koma hingað séu mellur, ó afsakið, en vændi er löngu komið til íslands og það kom ekki með strippi.
Annar puntur er að það sé svo mikil dópneysla í kring um þetta, ég vil benda öllum þeim anti-strippfrömuðum að kíkja niður í miðbæ okkar fögru höfuðborgar um helgar, viljiði ekki bara banna skemmtistaði yfir höfuð eða bara alla skemmtun, ég gæti sagt ykkur hvert þið ættuð að fara en það er augljóst.

Annað sem ég skil ekki, útlendingaeftilitið gefur hvaða bjána sem er atvinnuleyfi hér nema dönsurum á strippstöðum, þar er reynt eftir fremsta megni að tefja, endursenda og útúrsnúa leyfum, ég vil frekar að útlendingar sem vill vinna hér séu fólk sem kemur lífi í efnahaginn okkar, dæmi: strippari sem græðir 300 þúsund á mánuði hér eyðir meiripartinum af launum sínum hér til að kaupa föt og aðra nytsamlega muni sem þær fá ekki í sínu landi, ég veit um dæmi hinsvegar af öðrum útlendingum sem eru hér í nokkra mánuði án þess að eyða krónu nema í mat (vanalega það ódýrasta) og leigu (sem er hvort sem er dreigin af launum þeirra).

Svo er það umræðan um að þessar stelpur séu að reyna að negla einhverja gæja til að giftast sér til að geta verið hér til frambúðar, ja, ég veit ekki hvort sé nokkuð slæmt að flytja fleirri fallegar konur inn í landið, okkar eru allar að flýja til útlanda að leita að því sama og strippararnir leita að s.s. betra lífi.

Þið sem skiljið mitt sjónarhorn endilega látið heyra meira í ykkur, og þið hin, geriði okkur öllum greiða og flytjiði í eitthvað fasistaríki þar sem þið getið bragðað á ykkar eigin bulli.

Virðingarfyllst
Gyzmo