Eitt stykki Che Guevara bolur,
eitt stykki derhúfa með mynd af Fiedel Castro, sem merkir hinn trúi Castro á íslensku eins og dúdinn á skilið,
eitt stykki Havana vindill í kjaftinum,
gæti lífið verið betra?

Ókei, þetta með vindilinn minnir of mikið á japanskan buisnessman að gera sig breiðan á fundi fullum af fucking millum við að segja Kínverja brandara, eins og þessir Japanir gera í tíma og ótíma eins og við Hafnarfjarðarbrandara (Nema Japanir eru að hæðast að kommúnismanum undir yfirskini venjulegs nágrannabrandara, svo næst þegar þú heyrir Kínverja brandara, vittu að það er Uncle Sam sem talar og ekki hlægja!) En samt, ég er á móti reykingum og allt það, en hver vill ekki styrkja hann Castro?!

Nú legg ég til að hver einasti Íslendingur hvetji Hagkaup, Bónus og alla þá til að hætta að kaupa vörur frá löndum sem hata Kúbu eins og Bandaríkjunum, þau hata líka Saddam, sem var já ekkert skemmtilegur en hann sagðist þó vera sósíalisti, Bandaríkin reyna ekki einu sinni að þykjast vera það. Annars réðust þeir auðvitað bara á Írak af olíugræðgi!

Segjum versluninni okkar, sem vonandi er Bónus í þínu tilfelli eða kaupmaðurinn á horninu, því bara kapítalistar kaupa í Nóatúni og svoleiðis okurbúðum, að hætta að kaupa vörur frá BNA og fara að kaupa vörur frá Kúbu og Kína.

Hrigdu á alþingi og biddu þá að koma með kommúnískari áherslur. Það má reyna, kannski er einn kommi inn í skáp á alþingi sem yrði bara glaður að þú hringdir í hann.

Meðan þú ert að þessu, safnaðu hári og skeggi. Ekkert er betri auglýsing fyrir kommúnískan lífsstíl en myndarlegur maður með hár eins og hippi og skegg eins og Castro. Og stelpur, farið í hippa kjólana og setjið blóm í hárið eða farið í fallega boli sem stendur á “fuck the system”

Við kommar erum kúl og eigum ekki að skammast okkur fyrir að vera kommar.

Út úr skápnum alvöru vinstrimenn.
Alvöru vinstrimenn eru kúl!

PS: Nickið er grín frá því ég var að pósa sem hægrinördi til að fá fólk til að hugsa, greinin er kúl og ég meina hvert orð maður.