Ósköp er dapurlegt að horfa upp á Samfylkinguna nú á síðustu
dögunum fyrir kosningarnar. Mogginn og Fbl þurfa bráðum að fara að
gefa út aukablöð undir auglýsingarnar þeirra og svo er allt í pati.

Í dag var einhver stórfurðuleg ný útgáfa af
karlahatursforsætisráðherrauglýsingunni og svo ennþá furðulegri
auglýsingar sem mætti kalla “skoþeirkjósaokkur” auglýsingar.

Það er svo augljóst að þetta er langt frá því að vera heilsteyptur
stjórnmálaflokkur. Það getur enginn ákveðið hvað er vinsælt akkúrat í
dag þannig að þeir segja bara allt! Eruð þið búin að lesa meilið frá
Guðmundi Árna um Ingibjörgu?!??

Sorrí en þetta er bara ekki nútímalegur jafnaðarmannaflokkur og það
er engan veginn hægt að treysta þessu fólki í fimm mínútur fyrir að
stjórna landinu.