Fyrir nokkrum vikum á sjónvarpsstöðinni PoppTíví í þáttunum 70 mínútur sem eru mjög vinsælir hjá unglingum 12-18 ára fengu þáttarstjórnendur pólítíkusa í heimsókn. Það er svo sem gott og blessað en hverjir voru þetta? Jú, fyrst kom Ingibjörg Sólrún, síðan Össur og Steini J. að lokum. Þau gengu síðan í augun á verðandi kjósendum með því að taka þátt í þeirra leik.

En þetta er plott!

Hver á PoppTV, Norðurljós, Jón Ólafsson! Ekki skrítið að vinstri menn hafi bara komið!

Þetta er allt samsæri til að plata börnin og telja þeim trú um að þegar þau komi í fyrsta skipti í kjörklefann eigi þau að merkja við S, því þar á bæ er fólkið cool og fer létt með að drekka ógeðisdrykkinn!

Hinsvegar má nefna það að Dabbi mætti á FM957 verðlaunin og afhenti verðlaun. Sú útvarpsstöð er í eigu Jóns ólafs. Vonandi vegur þetta á móti í alþingiskosningunum árið 2007!