komiði sæl.
ég er hér ungur maður og ég veit ekkert hvað flokk ég á að styðja. Ég hafði engan áhuga á pólitík þegar ég var yngri en svo þegar félagi minn og bekkjarbróðir byrjaði með áróður um Framsóknarflokkinn út af sveitastjórnarkosningum í heimabæ okkar.

Þetta byrjaði á því að ég ákvað að vera Kommonisti (ekki rétt skrifað) en það var ekki lengi því ég sá að ég var hægri maður eins og Gunnar Birgisson móðurbróðir minn. En aftur á móti var afi minn eitt sinn formaður Sójalsitaflokks Íslands. Þannig það er mikil stefnuruglingur í minni ætt.

Nú jæja þegar ég var orðin Sjálfstæðismaður og búin að ganga í flokkin og alles þá uppgutaði ég að það var ekki allt sem mig líkaði við stefnuskrá Sjálfstæðismanna. Þannig að ég veit ekkert hvað er til ráðs. En það er eitt sem ég myndi aldrei gera er að ganga í hel***is þjóðernisflokkin sem ná kannski 0,1% út úr kosingum.
Catalyst Gaming d0ct0r_who