Ég var bara að velta því fyrir mér hvort þetta sé algegnt vandamál hjá ykkur þar sem síðast þegar ég spilaði þá neyddist LN-(St.Cuthy) monkinn minn að handtaka wizardinn í hópnum mínum fyrir morð.

Það var þannig að hópurinn var að leita að 2 týndum manneskjum og svo áttum að skila þeim í bæinn aftur.
Nema hvað að þegar við fundum þau þá var búið að heilaþvo þau þannig að þau réðust á okkur. Við náðum þó að rota þau og binda.

Þá tekur wizardinn upp á því að drepa aðra manneskjuna af því að “hún réðist á hann”. Þá neyddist minns monk náttúrulega að reyna að enforca smá justice þar sem hann trúir á St. Cuthbert og það endaði þannig að núna er wizardinn að rotna í fangelsi(improved evasion er SVO gott).

Það væri gaman að heyra ykkar sögur af bardögum á milli spilara og ástæðum þar að baki.

Eða er in-fighting ekki svo algengt?