Best að útskýra þetta fyrir ykkur. Staðreyndir málsins eru þær að það kom í minn hlut að velja nafn á áhugamálið, og ég taldi Spunaspil réttast. Fyrir því lágu aðallega þrjár ástæður:
1) Það er aðeins til eitt útgefið heiti á þessa tegund spila á íslensku, og það er Spunaspil. Eina íslenska spilið af þessarri tegund, Askur Yggdrasils, kallaði sig spunaspil.
2) Valið stóð í raun á milli þeirra tveggja hugtaka sem mest hafa verið notuð: Spunaspil og Hlutverkaleikur. Nú er svo að orðið Hlutverkaleikur er notað yfir svo margt annað og ég vildi forðast misskilning. (T.d er nafnið Hlutverkaleikur notað yfir ákveðnar kynferðislegar fantasíur).
3) Mér þykir persónulega orðið Spuni eiga meira við leikinn en hitt. Mér þykir Spunaspil (þó það sé ekki eins mikið notað) réttara, því það lýsi leiknum betur. Það eru til margar tegundir spila þar sem spilarar taka sér hlutverk. Sem dæmi ná nefna CRPG (Tölvuhlutverkaleiki). Þar leikur einstaklingur hlutverk, en það er ekki um neitt spuna að ræða þar sem unnið er innan takmarkaðs umhverfis tölvunnar.
Þetta eru jú staðreyndir málsins einsog þær liggja fyrir.
Kær kveðja
Vargur
Spunaspil Administrato