Jæja, ágætu spunaspilarar!

Þar sem síðasta mót gekk vel, er hugmyndin að endurtaka leikinn. Næsta spilamót verður helgina 6.-7. febrúar á komandi ári. Tímasetning þessi var valin með það í huga, að sem flestir komist og ekki séu nein próf eða þess háttar sem stendur í vegi fyrir námsmönnum.

Ásóknin á síðasta mót var með besta móti og er langt síðan jafn margir hafa komið á rpg-spilamót. Stelpur voru auk þess um 30% þátttakenda og leyfi ég mér að fullyrða að þær hafi aldrei verið fleiri. Mjög ánægjuleg þróun sem er að verða í þessu áhugamáli.

Að venju óskum við eftir stjórnendum. Þeir sem hafa áhuga á að stjórna, endilega setjið ykkur í samband við mig með eftirfarandi upplýsingar.

Nafn ævintýris:
Kerfi:
Lýsing:
Æskilegur aldur spilara:

Að sjálfsögðu munum verið gera vel við þá sem stjórna og fá þeir vissulega að spila frítt á þeim tímabilum sem þeir eru ekki að stjórna.

Skráningu stjórnenda lýkur 10. janúar. Skráning spilara hefst viku síðar.

Ég hvet alla til að taka þátt í umræðum um spilamótin á spjallsvæði Roleplayers á Íslandi á Facebook.com. Hugmyndin er, að reyna gera mótin sem allra skemmtilegust og þannig að sem flestir sjái sér fært að mæta hverju sinni.

Hlakka til að heyra frá ykkur.