Já, halló.

Ég hef séð þó nokkuð af fólki hér á huga vera að tala um hversu góðir heimatilbúnu klassarnir þeirra eru. Þeir séu þessi fína blanda af hinu og þessu.

Ég hef þó verið að pæla í svolitlu nýlega. Það er það hvernig þið jafnið út þessa heimatilbúnu klassa. Einnig hvernig þið byggið þá upp, og af hverju hinir venjulegu klassar geti ekki gert það sem þeir geta. Ef þið væruð til í að skella upp hvernig þið gerið þetta, og jafnið þetta út, þá væri það frábært.

Gunni
Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt.