Ég, eins og svo margir aðrir, spilaði eitt sinn spunaspil. Svo minnkaði tíminn sem við höfðum til að sinna þessu sporti, og seinna virtist enginn vera til í að spila lengur. Mál er þannig með vexti að ég bý í litlum bæ úti á landi og á ekki jafn auðvelt og margir aðrir að komast í spilahóp. Þannig að mér datt í hug svolítið sem var dálítið talað um þegar ég sat niðri í kjallara hjá besta vini mínum langar nætur (sem samt voru allt of stuttar), það er spunaspil á netinu. Spurning mín er sem sagt þessi; Er eitthvað spilað spunaspil á netinu, og ef svo er, hvernig kemst ég þá í eitthvað svoleiðis?

Vona að einhver geti leiðbeint mér á hina “réttu” braut<br><br>If practice make´s perfect and nobody´s perfect, then why practice? -Billy Corgan