Ég verð að fá að tjá mig lítillega um skoðanakönnun sem Cinril sendi inn um frammistöðu mína.

Ég samþykkti könnunina til þess eins að fá ekki á mig skot frá honum (eða öðrum) fyrir að ritskoða efni.

Þó er könnunin svo illa upp sett að nálgast ærumeiðingar. Hún er afskaplega hlutdræg í valmöguleikum sínum. Það eina jákvæða gefur til kynna sleikjuhátt. Versti valmöguleikinn gengur þó svo langt yfir öll mörk að ég veit vart hvað til bragðs skal taka.

Hvernig maður setur valmöguleikann að drepa eigi einhvern, inn í svona könnun?

Vargu
(\_/)