Sælir spunaspilarar!

Ég er í því að setja saman WoD chronicle og er að leita mér að stofnefni. Ég er sjálfur alveg nýr í þessu kerfi og veit lítið hvert ég á að snúa mér fyrir hitt og þetta.
Er eitthvað til sem getur gefið mér hugmyndir eða “statta” fyrir vopn og aðra hluti frá um 1975? Hugsið bara Miami Vice og þá fattið þið tímabilið.

Ég er ekki svo viss að neitt svona sé til, en það myndi kannski spara mér sporin, en ég er þó langt komin með hitt og þetta sem mun koma manni í stuð (eins og stórt safn af tónlist frá þessu tímabili :D). En ég væri samt vel til í að fá meira mekanískar upplýsingar annarstaðar frá (bílar, vopn, kannski spes merit).

Síðan er annað, eru einhverjar upplýsingar í grunn bókinni um fíkniefni (s.s. mekanísk áhrif þeirra í WoD kerfinu)? Hvað er saga frá 1975 án hellings af úrvals “Djöfla flösu”? ;D