Ég hef verið að pæla í því að spila D&D yfir irkið við vini mína og nokkra norska kunningja.
Helsta vandamálið við þannig spilun eru teningaköstin en þau getur verið mjög erfitt að framkvæma þannig að allir treysti öllum.
Lausn á þessu vandamáli væri að vera með bot á rásinni sem sér um öll teningaköst. Það var þannig bot á ircnet servernum hérna í den (fyrir ca 3-4 árum) sem hét noppa. Núna er hann horfinn og mig langar til að spyrja hvort að einhver hérna viti um þannig bot. Eða þá hvort að einhver spunapilsmaður hér á huga hafi kunnáttu og áhuga á að búa til svona bot.
Ef allt annað bregst þá myndi ég kunna að meta það ef að einhver gæti vísað mér á leiðbeiningar í gerð irc botta, þá ætti ég að geta unnið fram úr þessu sjálfur.