Ég og Pedro7 erum að leita af spilurum uppúr tvítugu fyrir Call of Cthulhu. Pedro mun stýra, en hann er þrælvanur spunameistari með mikla reynslu af kerfinu.

Call of Cthulhu er fljótlegt og sveiganlegt kerfi sem er einfalt að læra, það hentar því vel byrjendum sem lengra komnum. Hér lýsir útgefandinn kerfinu:
http://www.chaosium.com/index.php?section_id=13

Við erum að leita algjörum byrjendum jafnframt sem vönum spilurum. Þannig ef þig hefur alltaf langað til að prófa spunaspil en hefur ekki látið vera af því hingað til, þá endilega hafa samband. Við eigum allar bækur, alla tenginga og gögn, þannig að allt sem þú þarft að gera er að mæta.

Pedro er 29 ára og ég er 23 ára, því erum við að leita af spilurum sem eru minnsta kosti tvítugir. Spunameistarinn er enskur, því verður spilað á ensku.

Þetta verður meira roleplay frekar en rollplay en ef þið viljið vita meira, hafið þá endilega samband við annanhvorn okkar.