Sælir, félagar!

Ég er búinn að vera vinna í að finna leið til að hafa arenaleikina á sérþræði hér á huga, en það gengur eitthvað erfiðlega hjá mér.

Það er hægt að nota bæði almennaþráðinn sem og pósta leikjum sem greinum.

Hvort kjósið þið frekar?

Varðandi persónur, þá þyrfti að pósta þeim fyrir hvern leik fyrir sig, þannig hver og einn leikmaður sér um sína persónu. Hins vegar þyrftum við að hafa þráð sem heldur utan um XP/GP. Þá þyrfti hver og einn að pósta sínu rewardi fyrir hvern leik og heildarstöðu, en ekki allt sheetið.

Hvað segið þið um þetta?