Sælir spilarar, ég vil gjarnan komast í hóp hér í borginni til að spila með. Þekkinguna og áhugann á (A)D&D hef ég en ekki sérlega mikla reynslu af group-spilun (Fáir í mínum vinahópi eru inni í þessu svo það eru aðallega BG leikirnir og svo webRPG sem ég hef dundað mér við). Ég hef áhuga á fantasy (les Forgotten Realms og David Eddings) og langar til að láta ljósið skína í hlutverkaspilun. Ef einhver veit um hóp eða vill starta sínum eigin þar sem ég gæti verið með í áhöfn mætti sá sami gjarnan senda mér línu hér. Þakka pent.
“He who studies evil, is studied by evil.”