Halló. Ég er einn af þessum óldskúl spilurum sem hafa verið óaktívir í pnp rpg, en fyrir nokkrum vikum var ég að gramsa í geymslunni hjá mér og gróf upp allar RPG bækurnar mína og allt það dót. Ég hef ekki spila RPG í nokkur ár og þess vegna var gaman að rifja upp öll þesi ævintýri sem maður hefur stjórnað og spilað.
ég var mikið í Call of Cthulhu og stjórnaði því aðallega(var líka að stjórna Vampire, Sabbat campaigns aðalega) og ég tók þátt í fyrstu 6 eða 7 Fáfnismótunum á sínum tíma.
En ástæðan fyrir því að ég að senda þennan póst hingað er að ég er að leita af fólki sem prufukeyrði 2 ævintýri sem ég gerði, í kerfi ég sem ég kallaði Moroi(sambland af Cthulhu og storytelling system) ég hafði alltaf verið að gæla við það að gefa þessi ævintýri út, og var meira að segja búinn að senda svona grófan úrdrátt til fyrirtækis sem gefur út independent ævintýri fyrir Cthulhu kerfið. Ef einhvern man eftir þessu eða þekkir fólk sem spilaði þetta hjá mér, endilega sendið á mig mail. Ég var þekktur undir nafninu Jói Cthulhu.
mailið er azrael@hux.is<br><br>hux|AzRaeL
Corynthia
just take yer pick =)
hux|AzRaeL