Jæja þá er komið að því ég er að leita að 4-5 stjórnendum til þess að stjórna á næsta laugardag hinn 13. þar að segja á svokölluðu mini móti nexus er búið að samþykkja að leyfa okkur að nota salinn
þeir sem vilja stjórna sendið mér Pm með viðeigandi upplýsingum. svosem Nafn, Síma báða, aldur, kerfi og ævintíri(ef það er keypt), helsti aldur spilara og svona smá lýsing. Listinn er ekki tæmandi þannig að ef þið viljið ekki fá fólk sem reykir eða ef þið viljið reyklaust borð þá komiði þeim upplýsingum til skila.

Ég vil benda á að salurinn er ekkert gífurlega stór en reynt verður að koma þeim fyrir sem vilja komast og af sökum lélegra loftræstingu(en sem komið er) viljum við biðja fólk að fara í sturtu áður en það kemur.

Þetta mót verður bara eitt kvöld/Tímabil

einhverjar aðrar spurningar getið þið annaðhvort spurt hérna eða sent mér póst.

Takk