Sökum þess að WARMACHINE er að koma í Nexus eftir verslunarmannahelgina þá verður 1-2 “spilamót” eða spilakvöld í spunaspili í Iron Kingdom heiminum sem WARMACHINE gerist í (d20). Sivar mun stjórna þessum kvöldum en þetta verður milli 9-16 ágúst (nánari dagsetning síðar) og verður líklega spilað í spilasal Nexus.

Bráðlega verður boðið upp á skráningu í Nexus og í gegnum email (lah@in.is) fyrir þá sem hafa áhuga. Meira um þetta síðar.

Sivar er reyndur stjórnandi og hefur stjórnað að ég best veit á nærri öllum spilamótum sem hann hefur komist í síðustu 5-8 árin.

Það er hægt að fá nánari upplýsingar um Iron Kingdoms heiminn á http://privateerpress.com/ironkingdoms/default.php