Sælt veri fólkið. Ég er ekki sérlega vanur rólpleyisti en spila helst White Wolf kerfið “sáluga” (segi sáluga þar sem White Wolf breyttist í World of Darkness og hætti framleiðslu á spilunum sem voru undir White Wolf nafninu). Ég er að stjórna Werewolf: the Apocalypse og væri betra ef ég hefði eitthvað fleira en core bókina á pdf formatti (auk þess vantar nokkrar blaðsíður). Þess vegna ætla ég að athuga hvort einhver hér væri til í að selja mér einhverjar Werewolf bækur á viðráðanlegu verði (5.000 á bók er EKKI viðráðanlegt hjá mér) og viðráðanlegar til lesningar (hægt að fletta í gegn án þess að bókin hrynji í sundur).
Hér er listi yfir þær bækur sem mig vantar helst en aðrar koma endilega til greina.

Werewolf: the Apocalypse core book (óþægilegt að fletta í gegnum pdf)
Werewolf: Player's guide
Werewolf: Storyteller's companion

Ef einhver er með aðrar werewolf bækur sem hann myndi vilja losna við má hann endilega athuga hvort ég hafi áhuga.