Hverjar eru uppáhalds persónur ykkar? Endilega segið frá. Reyna að fá smá líf hérna.

Hjá mér myndi það vera sú nýjasta, mennskur Cleric sem tilbiður sólguðinn Pelor og notar Healing og Sun domain-in. Þessi Cleric ber nafnið Ramon. Ramon Rodriguez. Hann er suðrænn og seyðandi og hið mesta kvennagull.
Sumir vilja halda því fram að það sé ekki hegðun við hæfi starfsins en hann hundsar það fólk bara. Hví ætti hann ekki að gera það sem hann gerir? Hann er bara að dreifa ást og hamingju á sinn hátt.
Eldur er einnig í uppáhaldi, hann vill líka ganga um með smá olíu til að smyrja vopn sín svo hann geti notað þau sem væg eldvopn. A.m.k. þar til hann getur fengið almennileg vopn.