Ef þú átt við spilun leiksins, þá er leikurinn í raun bara eins erfiður (eða léttur) og stjórnandi leiksins gerir hann.
Ef þú átt hins vegar við hvort erfitt sé að læra D&D þá er það frekar auðvelt og lærist fljótt.
Best er að fá að prófa þetta með einhverjum sem hefur reynslu og læra af viðkomandi. Ef það er ekki í boði þá er spurning um að komast í byrjendahóp á spilamóti, eða í Nexus ef þeir eru með eitthvað slíkt í spilasalnum, eða fá 2-3 með sér í að læra á þetta og prófa.
D&D-ið sjálft er frekar típískt spunaspil - ef þú ert spilari þá tekur þú þér hlutverk persónu í sögum sem stjórnandinn undirbýr og leiðir áfram en persónurnar ráða ferðinni að miklu leyti sjálfar (oftast þó innan ramma ævintýrisins sem verið er að spila).
Ef þú ert stjórnandi þá tekur þú að þér það hlutverk að hafa stjórn á “handriti” sögunnar/ævintýrisins, þ.e.a.s. stjórnun umhverfisins sem persónur spilaranna þrífast í (fólk, staðir, skrýmsli, “plott”, o.s.frv.). Hljómar flókið en er það í raun ekki. Stjórnandinn þarf líka að passa sig að breyta leiknum ekki í keppni milli sín og spilaranna því þá fer tilgangur leiksins algerlega út um gluggann.
Ég mæli eindregið með að þú prófir þetta og ef það er eitthvað sem þig langar til að vita, sendu þá inn póst hingað og það er örugglega einhver sem er til í að aðstoða þig og svara spurningum þínum.
Rúnar M.