Ég hef aldrei spilað neitt svona role-playing dæmi og hef því ekki hugmynd um hvað er gott og hvað er ekki gott. En þó er bróðir minn eitthvað í þessu og hef ég séð hann spila eitthvað Dungeons & Dragons tvisvar og honum líkaði vel við. Því ákvað ég að gefa honum í jólagjöf Lord of the Rings:Core Book (Mynd af hendi Saurons með Hringinn á puttanum framan á bókinni). Þannig að ég var að pæla hvort þetta væri eitthvað skemmtilegt eður ei?