Hæ.
Ég er búinn að vera að spila d&d 3.5 núna í nokkra mánuði og er í smá bókakaupshugleiðingum. Ég var að pæla í hvort einhver hérna hefur pantað d&d bækur af amazon.com og veit hvort það er tollur af þessu? Allavega mjög gott verð hjá þeim.
Svo var ég líka að pæla í hvar væri gott að nálgast pdf útgáfur af bókunum. Ég hef verið að leita núna á vefnum í nokkurn tíma og á dc++ og finn bara engan veginn players handbook 3.5 sem mig vantar alveg gríðarlega. Þannig að ef einhver hérna á hana á pdf formi þá væri mjög flott að fá hana hjá honum svona til bráðabirgða þangað til maður nælir sér the real thing því það er auðvitað ólíkt þægilegra að hafa þetta á bókarformi. :)