Miðað við það sem ég hef séð hérna á Huga þá eru þó nokkrar stelpur að spila (þó að ein þeirra hafi reynst vera strákur að nota kt kærustunnar), það væri áhugavert að komast að því hvernig stelpurnar komust inn þetta stráka áhugamál. Ég veit að ég reyndi einu sinni að koma stelpum inn í hópa sem voru að spila í M.A. en það varð dáltið mikið þannig að strákarnir gátu varla einbeitt sér þegar það var stelpa að spila. Þeir bregðast samt allt öðruvísi við einhverri sem þeir vita að hefur spilað í langann tíma, taka þeim oft eins og einni af strákunum.

Hver er reynsla ykkar? Strákar en þó sérstaklega stelpur, endilega deilið þessu með mér.
<A href="